18:37 þann 21. janúar 2006 - finnbogi Leiðinlegt Það er leiðinlegt að vera með ónýtan ökkla, verulega leiðinlegt. Athugasemdir ( 10 ) | Katrín Kolka skrifaði síðasta svar
|
|
19:52 þann 13. janúar 2006 - finnbogi Úff púff... Jæja ekkert nýtt síðan að skólinn byrjaði. Maður er bara búinn að vera á fullu að missa sig í að læra heima í fyrsta skipti í mörg ár. Og svo öll hlaupin og æfingarnar... ég held að ég sé bara búinn að vera með strengi síðan ég byrjaði, eða kanski svona næstum. Athugasemdir ( 0 ) | Enginn hefur svarað!!
|
|
15:46 þann 01. janúar 2006 - finnbogi Árið Jæja þá er nýja árið komið, örugglega voðalega fínnt ár, örfáir dagar í að lögguskólinn byrji og maður hverfi af yfirborði jarðar. En allavega, gleðilegt nýtt ár handa ykkur öllum og reyniði að hafa það sem allra best... Athugasemdir ( 3 ) | Davíð skrifaði síðasta svar
|
|
22:25 þann 23. febrúar 2005 - finnbogi Engin Jólakort Áttaði mig á því í gærkveldi að ég hafði engin jólakort skrifað þetta árið... Þannig að þið sem áttuð að fá jólakort verðið bara að sætta ykkur við að fá engin jólakort. Þið sem þekkið mig eitthvað hafið hvort sem er sennilega ekki gert ykkur stórar vonir um að fá eitt slíkt. En allavega gleðileg jól bara handa ykkur öllum sem lesið þetta. Sjáumst svo bara hress og spræk við tækifæri, annað hvort milli jóla og nýárs eða einhverntíman seinna bara... Athugasemdir ( 2 ) | Kári skrifaði síðasta svar
|
|
12:19 þann 17. febrúar 2005 - finnbogi Akureyris... Jæja þá er maður kominn norður í jólafríið. Það er meira að segja snjókoma núna, svona til að fanga komu minni. Sé reyndar fram á að þurfa að skrifa ritgerð í jólafríinu en maður hlýtur að geta notað þetta í eitthvað annað líka... Athugasemdir ( 10 ) | Finnbogi skrifaði síðasta svar
|
|
20:51 þann 08. febrúar 2005 - finnbogi Hvað ef... Ef maður nennir ekki að læra, fer maður þá út að hlaupa jafvel þó að það sé rok og rigning? Athugasemdir ( 7 ) | Ásgeir skrifaði síðasta svar
|
|
15:14 þann 06. febrúar 2005 - finnbogi Ands... helv... djö.... og allt hitt líka Nú er ég endanlega snældu snargeðveikur í hausnum á þessar satans borg. Það er ekki nóg með að það sé alltaf rigning og rok hérna heldur getur þessi borg af sér þvílíkan ósóma og óþjóðalýð að annað eins hefur ekki fyrirfundist síðan á hinum myrku miðöldum. Við erum semsagt að tala um það að einhvert satans fólk kroppaði annan hákarlinn af bílnum mínum... Ég er reyndar svo brjálaður að ég ættla bara ekkert að segja meira... Athugasemdir ( 2 ) | Davíð skrifaði síðasta svar
|
|
17:31 þann 04. febrúar 2005 - finnbogi Ártalsskoðunarkönnun Jæja nú er það stóra spurningin. Hversu margir horfa að staðaldri á ártalið í Vaðlaheiði um áramótin?
Allir sem lesa þetta verða að svara, annars elti ég ykkur uppi og skít flugeldum í rassinn á ykkur.... Athugasemdir ( 10 ) | Inga Björk skrifaði síðasta svar
|
|
02:33 þann 18. janúar 2005 - finnbogi Frábært Ohh það er svo frábært að vera að gera ritgerð til að verða 4, yndislegt. Athugasemdir ( 2 ) | Davíð skrifaði síðasta svar
|
|
11:18 þann 15. janúar 2005 - finnbogi Chuck Norris Var að þvælast á netinu í staðinn fyrir að vera að skrifa ritgerð um umhverfisvæna ferðamensku. Rakst þá á fjölmargar staðreindir um hinn eitursnjalla leikara Chuck Norris. Þar sem ég er mikill aðdáandi og veit að margir sem lesa þessa síðu eru það líka þá ákveð ég að birta listann hér. Nú og fyrir þá sem ekki vita hver Chuck er, þá mæli ég með ferð á videoleiguna... Athugasemdir ( 1 ) | Kári skrifaði síðasta svar
|
|
19:26 þann 10. janúar 2005 - finnbogi Það eru EKKI að koma jól Ég held að fólk sé að misskilja eitthvað, jólin eru ekki á næsta leiti. Það þarf að koma desember til að það séu að koma jól. Ég fór semsagt út að skokka áðan og hljóp framhjá einhverjum krakka sem var að koma heim til sín með mömmu sinni. Og krakkinn var klæddur í jólasveinabúning, þe peysu og með jólasveinahúfu. Athugasemdir ( 4 ) | Davíð skrifaði síðasta svar
|
|